Vefur sem virkar. Án vesens.
Vefaura sér um vefinn fyrir lítil fyrirtæki: hönnun, hýsingu, lén, öryggi, vöktun og mánaðarskýrslu.
Vefur fyrir pípulagningameistara, smíðaður úr sniðmáti Vefauru. Nafn og tölur eru dæmi.
Sjáðu vefinn áður en þú kaupir hann.
Flestir kaupa vef út frá loforðum. Hjá okkur er þetta öfugt: við smíðum hann fyrst, þú skoðar hann, og svo ákveðurðu.
GAMLI VEFURINN
VEFAURA
Síminn efst, þjónustan á mannamáli, opnunartími sem er réttur, form sem skilar sér. Og hann er í loftinu eftir nokkra daga.
Svona virkar þetta
- 1
Segðu okkur hvaða fyrirtæki þetta er
Við finnum helstu upplýsingar og smíðum sýnishorn.
- 2
Þú færð hlekk
Skoðaðu vefinn áður en þú ákveður nokkuð.
- 3
Ef þér líkar hann tökum við við
Við tengjum lénið og sjáum um restina.
Breyttu sjálf(ur). Fimm mínútur, ekki fundur.
Stjórnborðið er skrifað fyrir fólk sem rekur fyrirtæki, ekki vefi. Það sem þú þarft að breyta oftast er fremst, og allt annað sjáum við um.
Textar og myndir
Fyrirsögn, texti og mynd í einföldu eyðublaði. Ekkert forrit að læra, engin uppsetning.
Forskoðun og afturköllun
Breytingar vistast sem drög. „Skoða breytingar“ sýnir þér þau, „Birta“ setur þau í loftið, og eldri útgáfur eru geymdar ef þú sérð eftir einhverju.
Lokað í dag
Einn hnappur, og vefurinn segir gestum frá því um leið. Viku fyrir páska, verslunarmannahelgi og jól minnum við þig á að segja til.
Eða sendu okkur línu og við gerum það fyrir þig.


Innifalið í áskriftinni
Allt sem þarf til að vefur sé til, sé uppi og skili einhverju. Ekkert sem þarf að kaupa til viðbótar.
- 01
Vefur tilbúinn á dögum
Við smíðum vefinn út frá þínum upplýsingum og sýnum þér hann áður en nokkuð kostar.
- 02
Hýsing, lén og SSL
Öll tæknilega hliðin. Lénið er alltaf skráð á þig, aldrei á okkur.
- 03
Vöktun allan sólarhringinn
Við fylgjumst með að vefurinn sé uppi, vottorð gild og lénið í lagi, og lögum áður en þú tekur eftir því.
- 04
Fyrirspurnir beint til þín
Skilaboð af vefnum berast í tölvupóst og í einfalt yfirlit þar sem þú merkir hvað varð úr.
- 05
Breyttu sjálf(ur), eða við gerum það
Opnunartímar, verð, myndir og textar á fimm mínútum. Forskoðun áður en þú birtir, afturköllun ef þú sérð eftir því.
- 06
Mánaðarleg skýrsla
Heimsóknir, símtöl og fyrirspurnir, og hvað við gerðum fyrir þig í mánuðinum.
Lénið þitt.
Skráð á þitt fyrirtæki hjá ISNIC, aldrei á okkur. Við biðjum aðeins um þær DNS-breytingar sem þarf og hreyfum ekki við tölvupóstinum þínum.
Gögnin þín.
Textar, myndir, fyrirspurnir og skýrslur eru þín. Þú sækir allt í einni skrá hvenær sem er, líka daginn sem þú hættir.
Engin binding.
Eitt verð, uppsögn hvenær sem er, ekkert smátt letur. Ef við stöndum okkur ekki ferðu, og við hjálpum þér að flytja.
Sami grunnur, ólík fyrirtæki
Sniðmát fyrir 27 atvinnugreinar, skrifuð fyrir hverja grein. Raunverulegir vefir viðskiptavina birtast hér með þeirra leyfi.
Iðnaður og verktakar
Heilsa og útlit
Matur og gisting
Ráðgjöf og skrifstofa
Verslun og annað
Þín grein ekki hér? Segðu okkur samt frá fyrirtækinu, við smíðum sýnishornið eftir sem áður.
EIN ÁSKRIFT
9.900 kr.
á mánuði
Vefur · hýsing · lén · SSL · vöktun · breytingar · skýrsla
Eða 99.000 kr. á ári, tveir mánuðir fríir. Öll verð án vsk.
Stofngjald frá 59.900 kr.
Nýr vefur frá grunni. 89.900 kr. ef flytja þarf eldri vef með öllum slóðum. Engin falin gjöld, engin binding umfram uppsagnarfrest.
Algengar spurningar
Þarf ég að kunna eitthvað á vefi?
Nei. Við smíðum vefinn og sjáum um allt tæknilegt. Þú getur breytt textum, opnunartímum og myndum sjálf(ur) ef þú vilt, annars gerum við það.
Hver á lénið?
Þú. Alltaf. Lénið er skráð á þitt fyrirtæki hjá ISNIC og við biðjum aðeins um þær DNS-breytingar sem þarf. Tölvupósturinn þinn er aldrei snertur.
Hvað gerist ef ég hætti?
Þú færð allt efnið þitt afhent, lénið er þitt og við hjálpum þér að flytja. Engin binding umfram uppsagnarfrest.
Hvað kostar þetta?
Ein áskrift: 9.900 kr. á mánuði eða 99.000 kr. á ári (tveir mánuðir fríir). Stofngjald frá 59.900 kr.. Verð án vsk.
Við skulum sýna þér fyrst.
Segðu okkur hvaða fyrirtæki þetta er. Við smíðum sýnishorn og sendum þér hlekk. Þú þarft ekki að kaupa neitt.
























